Ferilskráin

1999-2000

Prímadonnur ástarsöngvanna. Stóra sviðið á Broadway . Leikstjóri : Egill Eðvarðsson. Tónlistarstjóri: Gunnar Þórðarson. Tónlistarflutningur: Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar.

Haustið 1999

Hélt ég til Hollands og sótti einkatíma í raddbeitingu og söngtjáningu, einnig var hún í hljómsveit (spunasöngur leiddur af saxafóleikara, plötusnúð og trommara, nútíma danstónlist) sem vann ýmis verkefni.

2002 - 2009

"Le' Sing" - Litla sviðið á Broadway Leikstjóri: Egill Eðvarsson 2001 og Ingrid Jónsdóttir 2003. Danshöfundar: Selma Björnsdóttir, Þórun Erna Clausen og Brynja Valdís Gísladóttir. Tónlistarval: Gunnar Þórðarson og leikarar. Hlutverk: Þjónn sem syngur, dansar og leikur. "Le' Sing" er sýning þar sem að leikarar, söngvarar og grínistar skemmta og þjóna gestum hússins milli þess sem þeir flytja skemmtilega disco, rokk, motown og söngleikjamúsík svo og detta inn í leikspuna, töfrabrögð og uppistand. "Le' Sing" á um 100 sýningar að baki og fleiri sýningar eru í vændum á Broadway.

2005 Kabarett

Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir. Hlutverk í söngleiknum KABARETT, sem var frumsýndur 4. ágúst, 2005 hjá Íslensku óperunni í gamla bíói.

2006

Gaf út minn fyrsta geisladisk, Wild horses.  Diskurinn kom út 7. nóvember, 2006.  Útgáfutónleikar voru í Iðnó þann 26. nóvember og var fullt hús.

Nina og Geiri.

Aðalhlutverk í farsa sem spannar feril BÓ, Leik Nínu

Hótel Selfoss

Söngur yfir jólahlaðborðum á Hótel Selfossi alla laugardaga í desember.  Ásamt mér var Guðrún Árný systir.  Syngjum sóló, dúetta, stjórna fjöldasöng og held uppi veislustjórn.

2007

RÚV - Sjónvarp

Handritsgerð og leikur í Stundinni okkar.

Söngvakeppni Sjónvarpsins

Flyt lagið Júnínótt eftir Ómar Þ. Ragnarsson.  Verð í þriðja riðli keppninnar sem fram fer 3. febrúar nk.  Lögin sem keppa verða frumflutt á Rás 2 þ. 29. janúar.

Brúðkaupssýningin JÁ í Blómavali

Brúðkaupssýningin JÁ verður haldin í Blómavali við Skútuvog helgina 9. - 11. mars.  Syng við opnun sýningarinnar sem og á laugardag og sunnudag.  Guðrún Árný kemur fram með mér fyrri tvo dagana.

Tónleikar á Langa Manga, Ísafirði

Helgina 16. - 18. mars verð ég á Ísafirði.  Syng nokkur lög af diskinum Wild horses á föstudagskvöldinu og tek kannski nokkra slagara með hljómsveitinni Stellu.

Á laugardagskvöldið verð ég með kynningu á diskinum kl. 22:00 og held svo uppi fjörinu með strákunum í Stellu.  Stemmningin á Langa Manga er að sögn heimamanna, engu lík!

Diskurinn verður til sölu á staðnum!

HAUST 2007 ! ! !

Nú er vinna við "Revíurnar" í fullum gangi!  Er að setja upp "gömlu revíurnar" ásamt Erni Árnasyni, stórleikara og söngvara!  Sýningar hefjast 24. nóvember og verða í Iðnó.  Hægt er að panta miða og fá frekari upplýsingar í Iðnó (www.idno.is) og miðar verða einnig seldir á www.midi.is.

Nóvember 2007

Revíusöngvar - söngperlur úr íslenskum revíum - er í fullum gangi.  Sýningar sem hér segir:

Laugardaginn 24. nóvember kl. 20.00 - frumsýning
Sunnudaginn 25. nóvember kl. 20.00 - 2. sýning
Föstudaginn 30. nóvember kl. 20.00 - 3. sýning
Laugardaginn 1. desember kl. 20.00 - 4. sýning
Sunnudaginn 2. desember kl. 20.00 - 5. sýning
Föstudaginn 7. desember kl. 20.00 - 6. sýning

Mjög skemmtileg sýning þar sem flutt eru lög úr gömlu góðu revíunum og sagan á bak við lögin er sögð.  Notaleg stemmning í Iðnó!

2009

Söngvaseiður / Sound of Music

Borgarleikhusið